Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 34. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Héraðsdómur Austurlands birt 18. desember 2008

S-134/2008

Ákæruvaldið (Helgi Jensson fulltrúi) gegn Vilhelm Norðfjörð Sigurðssyni (sjálfur)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

V var sakfelldur fyrir líkamsárás sem var talin varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Með broti sínu rauf hann skilorð tveggja mánaða fangelsindóms. Var refsing hans ákveðin í einu lagi 3 mánaða fangelsi.

Hæstiréttur birt 19. febrúar 2004

324/2003

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Á (Hilmar Ingimundarson hrl)
Lykilorð: Loftöryggi. Tilkynning.

Á var ákærður fyrir brot gegn 120. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að hafa í nafni samtakanna F dreift í tölvupósti til fjölda viðtakenda „tilhæfulausri viðvörun um sprengjutilræði gegn íslenskri flugvél, sem var til þess fallin að vekja ótta um líf, heilbrigði og velferð manna“. Að virtum framburði Á og orðalagi viðvörunarinnar þótti ekki komin fram lögfull sönnun þess að með Á hafi búið sá ásetningur sem áskilinn er í nefndu refsiákvæði. Þegar af þeirri ástæðu var Á sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins.