Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 33. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Hæstiréttur birt 17. mars 2005

311/2004

Hlynur Eggertsson (Hilmar Ingimundarson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

H, sem hafði setið í gæsluvarðhaldi um tæplega þriggja mánaða skeið vegna gruns um aðild að innflutningi á fíkniefnum, krafðist skaðabóta eftir að ríkissaksóknari tilkynnti honum að mál á hendur honum hefði verið fellt niður. Talið var að hegðun H hafi leitt til handtöku hans og framkoma hans við skýrslugjöf hjá lögreglu hafi verið með þeim hætti að hún hafi stuðlað, ef ekki valdið því, að hann var hnepptur í gæsluvarðhald og hversu sú vist hans dróst á langinn. Var íslenska ríkið því sýknað af bótakröfu H þrátt fyrir að gæsluvarðhaldtíminn hafi verið í lengra lagi.

Hæstiréttur birt 5. apríl 2001

123/2001

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Magnús Björn Brynjólfsson hdl)
Lykilorð: Kærumál. Farbann.

X var ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar. Var honum gefið að sök að hafa í fjögur skipti reynt að brjótast inn í fyrirtæki í auðgunarskyni. Var hann sakfelldur fyrir að hafa reynt það í þrígang en í einu tilviki þótti það ekki fyllilega sannað. Með hliðsjón af löngum brotaferli X var honum gert að sæta fangelsi í 12 mánuði.