Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 190. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála
Með dómi Landsréttar í máli nr. 43/2018 var X sakfelldur fyrir brot gegn 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í tvö skipti á tilgreindu tímabili káfað á kynfærum dóttur sinnar A. Refsing X var ákveðin fangelsi í níu mánuði en fullnustu sex mánaða hennar frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Með úrskurði endurupptökudóms 11. janúar 2022 var fallist á endurupptöku málsins fyrir Landsrétti að beiðni ákærða. Með hinum áfrýjaða dómi Landsréttar í máli nr. 60/2022 var X sakfelldur á ný og refsing hans ákveðin 12 mánaða fangelsi en níu mánuðir bundnir skilorði í tvö ár. Með þeim dómi var X gerð þyngri refsing en hann hafði áður verið dæmdur til með fyrri dómi Landsréttar. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu Landsréttar um sakfellingu en taldi ákvörðun refsingar hafa verið í beinni andstöðu við 5. mgr. 231. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, um að hlutur ákærða megi aldrei verða lakari en hann var eftir hinum upphaflega dómi. Refsing var ákveðin fangelsi í níu mánuði en fullnustu sex mánaða hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þar sem brotaþoli hafði fengið greiddar miskabætur úr ríkissjóði eftir fyrri dóm Landsréttar var bótakröfu hennar í málinu vísað sjálfkrafa frá Landsrétti.