Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 168. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála
A og S voru ákærðir fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, A með því að hafa slegið tvo lögreglumenn og A og S með því að hafa ásamt þriðja manni ráðist að lögreglumanni og slegið hann ítrekað og sparkað í höfuð hans. Fyrir Hæstarétti gerði ákæruvaldið athugasemdir um atriði sem ekki hafi verið nægjanlega litið til við úrlausn málsins í héraði. Ekki þóttu efni til að telja ákvæði 5. mgr. 159. gr. laga nr. 19/1991 geta átt við. Talið var að héraðsdómara hafi frá öndverðu mátt vera ljóst að niðurstaða málsins myndi ráðast af mati á sönnunargildi munnlegra skýrslna og hefðu með réttu lagi þrír héraðsdómarar átt að skipa dóm í málinu. Þrátt fyrir það voru ekki talin efni til að ómerkja héraðsdóminn. Talið var sannað að A hafi slegið tvo lögreglumenn, en hins vegar ekki talið sannað að hann hafi gert sér grein fyrir að um lögreglumenn var að ræða við verknaðinn, en þeir voru óeinkennisklæddir. Var brot A því ekki heimfært undir 1. mgr. 106. gr. hegningarlaga, heldur 1. mgr. 217. gr. Ekki var talið sannað að A og S hefðu í sameiningu ásamt þriðja manni ráðist á lögreglumann, enda hafi lögreglumennirnir ekki getað borið um það hverjir það hafi verið sem veittust að honum og fleiri hafi verið á vettvangi. Voru þeir því sýknaðir af þeim hluta ákærunnar sem sneri að þeirri háttsemi. Við ákvörðun refsingar A var m.a. litið til þess að hann réðst án nokkurs tilefnis á tvo menn úti á götu og veitti þeim þung höfuðhögg. Þá voru fjórir félagar hans komnir út úr bifreið reiðubúnir til að leggja honum lið. Var refsing A ákveðin fangelsi í þrjá mánuði, en ekki þóttu efni til að skilorðsbinda hana.
Þrír karlmenn voru ákærðir fyrir brot gegn valdstjórninni með því að ráðast á lögreglumenn á Laugavegi í janúar síðastliðnum. Tveir voru alfarið sýknaðir en sá þriðji var sakfelldur fyrir líkamsárás þar eð ekki var talið sannað að hann hefði vitað að þetta voru lögreglumenn. Dæmdur í 60 daga fangelsi, skilorðasundið í 2 ár.
X var sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum. Hann var 15 ára þegar hann framdi brot sín. Dæmdur í 6 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára. Þá var honum gert að greiða stúlkunum miskabætur og dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar.
X var sakfelldur fyrir að hafa haft samræði við Y og við það notfært sér að sökum ölvunar og svefndrunga gat hún ekki spornað við verknaðinum. Var X gert að sæta fangelsi í 12 mánuði. Þá var hann dæmdur til að greiða Y 500.000 krónur í miskabætur.
Sýknað var af ákæru um brot á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum við byggingu Kárahnjúkavirkjunar þar sem maður beið bana vegna grjóthruns.