Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 146. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála
A (sjálfur) gegn
B og C (enginn)
A kærði úrskurð héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi aðila um arfstilkall þeirra við opinber skipti á dánarbúi D. Í kæru A til Hæstaréttar var ekki greint frá dómkröfum A fyrir Hæstarétti eða ástæðum, sem kæra var reist á, eins og borið hefði að gera samkvæmt b. og c. lið 1. mgr. 145. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sem áttu við eftir 2. mgr. 133. gr. laga nr. 20/1991. Héraðsdómari kom því á framfæri við A að kæra væri ekki réttilega úr garði gerð, sbr. 2. mgr. 146. gr. laga nr. 19/1991 en þrátt fyrir það var ekki bætt úr annmörkunum. Var því óhjákvæmilegt að vísa málinu af sjálfsdáðum frá Hæstarétti.