Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 134. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Úrskurður Héraðsdóms felldur úr gildi. X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Héraðsdómari ákvað að heimila ákæruvaldinu að leiða tvö nafngreind vitni í máli sem höfðað hafði verið gegn X fyrir brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hæstiréttur felldi þessa ákvörðun úr gildi með vísan til þess að dómaranum hefði borið að kveða upp úrskurð í stað þess að taka ákvörðun, sbr. 2. mgr. 61. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson fulltrúi) gegn
X (sjálfur)
Héraðsdómari ákvað að hafna kröfu X um að fá að leiða þrjú nafngreind vitni í máli, sem ákæruvaldið hafði höfðað gegn honum fyrir brot gegn 120. gr. a. almennra hegningarlaga. Hæstiréttur felldi þessa ákvörðun úr gildi með vísan til þess að dómaranum hefði borið að kveða upp úrskurð í stað þess að taka ákvörðun, sbr. 61. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Héraðsdómari ákvað að hafna kröfu X um að fá að leiða þrjú nafngreind vitni í máli, sem hún hafði borið undir héraðsdóm til að fá leyst úr lögmæti halds, sem lagt var á dagbók í eigu hennar við rannsókn lögreglu á opinberu máli. Hæstiréttur felldi þessa ákvörðun úr gildi með vísan til þess að dómaranum hefði borið að kveða upp úrskurð í stað þess að taka ákvörðun, sbr. 61. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.