Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 13. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Hæstiréttur birt 18. desember 2008

13/2008

Ákæruvaldið gegn Jens R. Kane (Brynjar Níelsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

J var ákærður fyrir líkamsárás gagnvart V. Við skýrslugjöf V, sem er spænskumælandi, í héraði var fenginn til starfa túlkur sem ekki hafði hlotið löggildingu til að gegna því starfi. Fyrir Hæstarétti bar ákærði brigður á réttmæti þýðingar á skýrslu V. Af hálfu ákæruvaldsins var því ekki haldið fram að ekki hafi verið kostur á löggiltum dómtúlki, sbr. 1. og 2. mgr. 13. gr. laga um meðferð opinberra mála. Þá var í héraðsdómnum ályktað um sakfellingu ákærða samkvæmt ákæru án þess að afstaða hafi verið tekin til allra atriða sem þar greina. Eftir uppkvaðningu héraðsdómsins mætti vitni, sem gaf skýrslu í héraði, á ný fyrir dóm og greindi frá atriðum sem það var ekki innt eftir hið fyrra sinni, en ekki var talið loku fyrir það skotið að þau atriði sem þar komu fram gætu haft áhrif við mat á sönnunargildi framburðar V. Að öllu þessu gættu var talið óhjákvæmilegt að ómerkja héraðsdóminn og vísa málinu heim í hérað til aðalmeðferðar og dómsálagningar á ný. Þá þótti rétt að héraðsdómarinn neytti heimildar 1. mgr. 5. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála til að kveðja tvo aðra héraðsdómara til setu með sér í dómi við nýja meðferð málsins.