Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 4. mgr. 108. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Hæstiréttur birt 7. september 2006

482/2006

Lögreglustjórinn í Reykjavík gegn X (Guðrún Sesselja Arnardóttir hdl)

Fallist var á að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli d. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Kröfu um tilhögun gæsluvarðahaldsvistar hans var vísað frá Hæstarétti.

Hæstiréttur birt 15. nóvember 2004

447/2004

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Jón Egilsson hdl)

X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Þá var lagt fyrir héraðsdómara að taka kröfu X um tilhögun gæsluvarðhaldsvistar hans til efnismeðferðar.

Hæstiréttur birt 5. febrúar 2002

45/2002

Ákæruvaldið (enginn) gegn X (Björn Lárus Bergsson hrl)

Héraðsdómari vísaði frá kröfum X varðandi tilhögun gæsluvarðhaldsvistar. Hæstiréttur ómerkti úrskurð héraðsdóms með vísan til þess að af gögnum málsins yrði ekki ráðið að héraðsdómari hefði boðað ákæruvaldið til að sækja þing, svo sem rétt hefði verið, sbr. meðal annars dóma Hæstaréttar í dómasafni 1995, bls. 1270, og 1997, bls. 3239. Þar sem þessa hafði ekki verið gætt taldi Hæstiréttur ekki hjá því komist að ómerkja hinn kærða úrskurð og leggja fyrir héraðsdómara að taka málið til meðferðar á ný.

Hæstiréttur birt 3. júlí 2001

246/2001

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Björn Lárus Bergsson hrl)

Gæsluvarðhaldsfanginn X kærði þá ákvörðun héraðsdómara að synja honum um heimild til að útvega sér sjálfur fæði og senda póst í gegnum tölvu. Var ákvörðunin reist á 108. gr. laga nr. 19/1991 og reglugerð nr. 179/1992 um gæsluvarðhaldsvist. Í dómi Hæstiréttar kemur fram, að í a. lið 1. mgr. 108. gr. nefndra laga sé meðal annars kveðið á um að gæsluföngum sé heimilt að útvega sér sjálfir og taka við fæði. Þrátt fyrir heimild dómsmálaráðherra til að setja nánari reglur um tilhögun gæsluvarðhaldsvistar í reglugerð, sbr. 3. mgr. 108. gr. laganna, þótti slíkt reglugerðarákvæði ekki geta staðið framar eða breytt inntaki skýrrar lagaheimildar. Fallist var á kröfu X um að útvega sér sjálfur fæði í gæsluvarðhaldsvist, en að öðru leyti var kröfum hans hafnað.