Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 108. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Hæstiréttur birt 3. júlí 2001

246/2001

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Björn Lárus Bergsson hrl)

Gæsluvarðhaldsfanginn X kærði þá ákvörðun héraðsdómara að synja honum um heimild til að útvega sér sjálfur fæði og senda póst í gegnum tölvu. Var ákvörðunin reist á 108. gr. laga nr. 19/1991 og reglugerð nr. 179/1992 um gæsluvarðhaldsvist. Í dómi Hæstiréttar kemur fram, að í a. lið 1. mgr. 108. gr. nefndra laga sé meðal annars kveðið á um að gæsluföngum sé heimilt að útvega sér sjálfir og taka við fæði. Þrátt fyrir heimild dómsmálaráðherra til að setja nánari reglur um tilhögun gæsluvarðhaldsvistar í reglugerð, sbr. 3. mgr. 108. gr. laganna, þótti slíkt reglugerðarákvæði ekki geta staðið framar eða breytt inntaki skýrrar lagaheimildar. Fallist var á kröfu X um að útvega sér sjálfur fæði í gæsluvarðhaldsvist, en að öðru leyti var kröfum hans hafnað.