Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð, lögum um sjúklingatryggingu, lögum um heilbrigðisþjónustu, lögum um málefni aldraðra og lögum um eftirlaun til aldraðra. nr. 160/2007
Aðila greindi á um hvort viðmiðunarlaun eftirlauna stefnanda skyldu áfram taka mið af launabreytingum forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins eða hvort forsendur hafi brostið fyrir því launaviðmiði við það að hluti verkefna Tryggingastofnunar ríkisins hafi árið 2008 verið með lögum fært til Sjúkratrygginga. Ekki var á það fallist að launaþróun viðmiðunarlaunanna sem stjórn stefnda hafði ákveðið að breyting á lífeyri hans tæki mið af, sbr. 2. mgr. 35.gr. laga umlífeyrissjóð starfsmanna ríkisins nr. 1/1997 og sambærileg ákvæði samþykkta stefnda, hafi verið óeðlileg. Þá var ekki fallist á að umfang, eðli og ábyrgð annarra starfa sem stefnandi byggði dómkröfur sínar á, gerði laun fyrir þau störf tæk til viðmiðunar. Ekki var fallist á þrautavarakröfu stefnanda um ógildi ákvörðunar stjórnar stefnda um höfnun endurskoðunar viðmiðunarlaunanna. Þrátt fyrir að stefndi sé lífeyrissjóður og ákvarðanir hans teljist ekki stjórnvaldsákvarðanir þótti mega til grundvallar að stjórn stefnda bæri engu að síður að gæta þeirra meginsjónarmiða sem liggja að baki reglum stjórnsýsluréttar. Var ekki talið gegn þeim ákvæðum brotið og ekki fallist á að stjórnin hafi ekki fylgt samþykktum sínum við afgreiðslu erinda stefnanda.