Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lög: Lög um breyting á lögum nr. 36/1978, um stimpilgjald, með síðari breytingum. nr. 157/1998
H, sem selt hafði fiskiskip úr landi, var á grundvelli laga nr. 36/1978 gert að greiða stimpilgjald af afsali. Innti H greiðsluna af hendi með fyrirvara um endurgreiðslu, sem hann síðan krafðist á grundvelli þess að álagningin bryti gegn ákvæðum 65. og 72. gr. stjórnarskrár. Vísaði H í því sambandi til þess að með 7. og 8. tl. 1. gr. laga nr. 157/1998, um breytingu á lögum nr. 36/1978, hafi skylda til greiðslu stimpilgjalds vegna sölu á kaupskipum úr landi verið felld niður. Talið var að játa yrði löggjafanum víðtækt vald til að ákvarða, hvaða atriði skuli ráða af eða á um skattskyldu. Þá þótti undanþáguheimild laganna ekki brjóta í bága við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Kröfum H var samkvæmt þessu hafnað.