Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 20. gr. laga nr. 144/1994 — Lög um ársreikninga
Ákæruvaldið (
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Gunnari Viðari Bjarnasyni og Stefáni Braga Bjarnasyni (
Erlendur Gíslason hrl)
G, framkvæmdastjóri A hf., og S stjórnarformaður þess, voru ákærðir fyrir skilasvik, framin í rekstri félagsins skömmu áður en það var úrskurðað gjaldþrota, með því að hafa selt C ehf., sem G var stjórnarformaður fyrir og eigandi að, hluta af vörubirgðum A hf. fyrir óhæfilega lágt verð en þær voru veðsettar F banka hf. Með þessu voru G og S taldir hafa skert rétt bankans og annarra lánardrottna til að öðlast fullnægju af eignum þrotabúsins og dregið taum C hf. lánardrottnum til tjóns. Hæstiréttur taldi að G og S hafi ekki getað dulist að með sölunni skapaðist veruleg hætta á því að F banki hf. yrði fyrir fjártjóni. Voru þeir taldir hafa brotið gegn veðréttindum bankans í auðgunarskyni ekki síst í ljósi þess að þeim hafði skömmu áður verið birt greiðsluáskorun frá honum. Voru G og S sakfelldir fyrir brot gegn 2. tölulið 1. mgr. 250. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákvörðun refsingar var á hinn bóginn frestað skilorðsbundið í tvö ár vegna þess óhæfilega dráttar sem orðið hafði á meðferð málsins.
Ákæruvaldið (
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir saksóknarafulltrúi)
gegn
Gunnari Viðari Bjarnasyni og Stefáni Braga Bjarnasyni (
Erlendur Gíslason hrl)
Ákærðu sakfelldir fyrir skilasvik framin í rekstri Véla og þjónustu hf., sem úrskurðað var gjaldþrota 7. september 2004. Refsing 6 mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.