Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 2. gr. laga nr. 144/1994 — Lög um ársreikninga
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu V um að hann fengi að leiða B og 16 nafngreind vitni fyrir dóm og að skylt væri að leggja fram tiltekið tölvubréf. Krafa V var reist á XII. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. V taldi sig hafa orðið fyrir tjóni þegar hlutabréf hans í L hf. urðu verðlaus og að tjónið mætti a.m.k. að hluta rekja til ólögmætra og saknæmra athafna sem B hefði stuðlað að eða átt þátt í. Talið var að skilyrði 1. og 2. mgr. 78. gr. laga nr. 91/1991 væru uppfyllt og að þau atvik sem V leitaði sönnunar um vörðuðu lögvarða hagsmuni hans. Skýrsla yrði þó ekki tekin af B sem fyrirsjáanlega yrði aðili að væntanlegu dómsmáli. Í dómi Hæstaréttar kom fram að 3. mgr. 77. gr. laga nr. 91/1991 stæði því ekki í vegi að sönnunargagna væri aflað til að hafa uppi skaðabótakröfu í einkamáli á grundvelli saknæmrar og ólögmætrar háttsemi, þó svo að sú háttsemi sem sönnunargagna væri leitað um gæti verið refsiverð. Var í þessu samhengi meðal annars vísað til þess að almennar reglur laga nr. 91/1991 giltu um skýrslur sem vitni gæfu samkvæmt heimild í XII. kafla laganna. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og fallist á kröfu V að því undanskildu að B var ekki gert að gefa skýrslu fyrir dómi.
Hafnað var þeirri beiðni vitnastefnanda að fá að leiða vitnastefnda fyrir dóminn sem og 16 nafngreind vitni. Því var einnig hafnað að skylt væri að leggja fram í dómi nánar tilgreint tölvuskeyti.