Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 1. gr. laga nr. 139/1998 — Lög um gagnagrunn á heilbrigðissviði
Kærumál. Lögvarðir hagsmunir. Aðild. Stefna Lagarök. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi. R krafðist þess að felld yrði úr gildi sú ákvörðun landlæknis að hafna beiðni R um að upplýsingar um látinn föður hennar yrðu ekki fluttar í þann gagnagrunn, sem um ræðir í lögum nr. 139/1998 um gagnagrunn á heilbrigðissviði, og heldur ekki upplýsingar um ættfræði eða erfðafræði varðandi hann. Að kröfu Í var málinu vísað frá héraðsdómi og kærði R þann úrskurð. Með hliðsjón af þeirri röksemd R að hún ætti persónulegra hagsmuna að gæta af því að orðið yrði við beiðni hennar, var ekki á það fallist með Í að R skorti lögvarða hagsmuni af því að fá leyst úr fyrrgreindum kröfum sínum að efni til. Af hálfu R höfðu verið sérstaklega færðar fram skýringar á aðild hennar að málinu. Tekið var fram af þessu tilefni, að tækist R ekki gegn andmælum Í að vísa til viðhlítandi stoðar í réttarheimildum fyrir aðild sinni, ylli það sýknu Í, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991. Ekki væru því efni til að vísa málinu frá af þeim sökum, né heldur þeim að lagatilvísanir í stefnu R væru öllu ítarlegri en venja stæði til. Frávísunarúrskurður héraðsdóms var því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.