Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 7. gr. laga nr. 135/2008 — Lög um embætti sérstaks saksóknara

Hæstiréttur birt 20. apríl 2018

328/2017

Íslenska ríkið (María Thejll lögmaður) gegn Páli Sigurðssyni (Kristján B. Thorlacius lögmaður)

P var skipaður lögreglufulltrúi hjá embætti sérstaks saksóknara í september 2011 og gegndi þeirri stöðu allt þar til hann hóf störf sem rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu í október 2014. Reis í kjölfarið ágreiningur um hvort P hefði verið leystur frá embætti sínu hjá sérstökum saksóknara eða hvort hann hefði verið fluttur í annað embætti í skilningi 36. gr. laga nr. 70/1996 og ætti þar með rétt á að fá greiddan þann launamismun sem eftir var af skipunartíma hans í fyrra embættinu. Byggði P á hinu síðarnefnda og krafðist greiðslu fjárhæðar sem svaraði til launamismunarins á milli embættanna á tímabilinu frá því að hann tók við hinni nýju stöðu og þar til embætti sérstaks saksóknara var lagt niður í janúar 2016, auk þriggja mánaða biðlauna. Í héraði var krafa P tekin til greina. Í dómi sínum vísaði Hæstiréttur til tveggja bréfa innanríkisráðuneytisins til P sem lágu fyrir í gögnum málsins. Taldi rétturinn að af þeim yrði ráðið að upphaflega hafi verið miðað við að staða P hjá sérstökum saksóknara yrði lögð niður en síðar verið fallið frá því og P þess í stað fluttur í umrædda stöðu hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Hefði hann því átt rétt á að fá greiddan þann launamismun sem eftir var af skipunartíma hans í fyrra embættinu auk biðlauna. Var niðurstaða héraðsdóms því staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. febrúar 2017

E-1449/2016

X (Kristján B. Thorlacius hrl) gegn íslenska ríkinu (María Thejll hdl)
Lykilorð: Embættismenn. Laun.

Stefndi var dæmdur til að greiða stefnanda fjárkröfu sem nam mismun á launum stefnanda sem rannsóknarlögreglumanns hjá Lögreglustjóranum í Reykjavík og launum hans sem skipaðs lögreglumanns hjá embætti sérstaks saksóknara á greindu tímabili.