Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á ýmsum lögum sem varða réttarfar, atvinnuréttindi o.fl. vegna aðildar að samningi um Evrópska efnahagssvæðið. nr. 133/1993

Hæstiréttur birt 24. janúar 2014

20/2014

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (Óskar Sigurðsson hrl) gegn Bílum og fólki ehf (Jóhannes Karl Sveinsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á beiðni B ehf. um dómkvaðningu matsmanna. B ehf. hafði höfðað mál á hendur S til heimtu bóta vegna missis hagnaðar sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir þar sem S hefði ekki tekið tilboði hans í akstur vegna almenningssamgangna í nánar tilgreindu útboði. Málinu hafði verið áfrýjað og hugðist B ehf. nota matið til sönnunar á fjárhæð tjóns síns við meðferð málsins fyrir Hæstarétti. Þar sem liðinn var frestur aðila til gagnaöflunar fyrir Hæstarétti, samkvæmt 1. mgr. 160. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, taldi rétturinn tilgangslaust til sönnunar í málinu að afla umbeðins mats, sbr. 3. mgr. 46. gr. laga nr. 91/1991. Hafnaði Hæstiréttur því beiðni B ehf. um dómkvaðningu matsmanna.

Hæstiréttur birt 25. október 2005

444/2005

Íslenska ríkið (Óskar Thorarensen hrl) gegn HOB víni ehf (Stefán Geir Þórisson hrl)

Í máli sem H hafði höfðað gegn Í var farið fram á ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins. Krafðist H þess að teknar yrðu skýrslur af tveimur nafngreindum vitnum fyrir héraðsdómi til framlagningar fyrir EFTA-dómstólinn, með heimild í 2. mgr. 76. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þar sem sönnunarfærsla þessi þótti bersýnilega þýðingarlaus var kröfu H hafnað.