Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 62. gr. laga nr. 13/1996 — Lög um verðbréfaviðskipti
Máli vísað frá dómi þar sem málatilbúnaðurinn samrýmdist ekki d. og e. lið 80. gr. eml.
S krafði S hf. um greiðslu skaðabóta úr ábyrgðartryggingu fyrirtækis sem tekið hafði verið til skipta samkvæmt reglum um slit fyrirtækja í verðbréfaþjónustu. Með vísan til þess að ekkert lá fyrir um að skaðabótaskyldan hefði verið staðreynd, þótt fjárhæð kröfu S hefði verið viðurkennd af skiptastjóra á öðrum grundvelli, og að S hf. þyrfti ekki að vera bundið af þeirri ákvörðun skiptastjóra þar sem hann hefði hafnað bótaskyldu, voru skilyrði 1. mgr. 95. gr. laga nr. 20/1954 um vátryggingarsamninga ekki talin vera fyrir hendi. Þá var ekki það samband með vátryggingartaka og S hf. að félagið hefði fyrirsvar fyrir þann fyrrnefnda. Samkvæmt þessu og með vísan til 1. mgr. 26. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála var kröfum S vísað frá héraðsdómi.