Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 19. gr. laga nr. 13/1996 — Lög um verðbréfaviðskipti

Hæstiréttur birt 10. apríl 2003

100/2003

Burnham International á Íslandi hf (Aðalsteinn E. Jónasson hrl) gegn Framtaki fjárfestingarbanka hf (Gestur Jónsson hrl)

Kærumál. Félagsslit. Verðbréfafyrirtæki. Kröfulýsing. Málsástæður. Lögvarðir hagsmunir. Frávísun máls frá héraðsdómi. Kærður var úrskurður héraðsdóms, þar sem viðurkennd var við félagsslit B skaðabótakrafa F. Forveri F hafði gert samning árið 1997 við forvera B um „vörslu, umsýslu og ávöxtum tiltekinna fjármuna“ F. B var svipt starfsleyfi til verðbréfaviðskipta í nóvember 2001 og tekið til skipta eftir reglum um slit fyrirtækja í verðbréfaþjónustu. Á kröfulýsingarfresti kom m.a. fram krafa frá F þar sem lýst var sem almennri kröfu „kröfu skv. Burnhamsvíxli“. Í síðara bréfi F til skiptastjóra reisti F sömu kröfu einnig á þeirri málsástæðu að B væri skaðabótaskylt gagnvart sér. Á skiptafundi í apríl 2002 viðurkenndi skiptastjóri kröfu F sem almenna kröfu, en hafnaði bótaábyrgð B vegna viðskiptanna. Var talið að F gæti ekki nú haldið kröfu sinni, sem þegar hafði verið viðurkennd, til streitu með málsókn fyrir dómi til þess eins að fá úr því leyst hvort það skyldi gert á grundvelli einnar málsástæðu sinnar fremur en annarrar, sbr. meginreglu 1. mgr. 98. gr. laga um meðferð einkamála. Hafði F því ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins, svo sem það hafði verið lagt fyrir dómstóla, og var málinu vísað sjálfkrafa frá héraðsdómi.