Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á lögum um fangelsi og fangavist, nr. 48 19. maí 1988 (heilbrigðisþjónusta, vistun gæsluvarðhaldsfanga og samfélagsþjónusta). nr. 123/1997

Hæstiréttur birt 8. júní 2006

547/2005

Þórhallur Ölver Gunnlaugsson (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Skarphéðinn Þórisson hrl)

Þ, sem var refsifangi í fangelsinu L, varð fyrir líkamstjóni þegar annar fangi réðst á hann. Þ krafðist viðurkenningar á rétti sínum til skaðabóta úr hendi Í vegna árásarinnar og vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir þar sem hann fékk ekki viðeigandi læknisþjónustu. Ekki var talið að öryggisgæslu hefði verið áfátt í fangelsinu þegar Þ varð fyrir hinni ólögmætu líkamsárás og var því ekki fallist á að Í bæri bótaábyrgð vegna árásarinnar. Í yfirmatsgerð kom fram að dráttur hefði verið á að Þ kæmist til tannlæknis vegna áverka er hann hlaut á tönnum í árásinni og hafi það valdið honum óþarfa þjáningum en ekki haft varanlegar afleiðingar. Fallist var á að Þ ætti rétt á þjáningabótum úr hendi Í vegna þess tímabils sem hann fékk ekki viðeigandi tannlæknaþjónustu.

Hæstiréttur birt 1. febrúar 2001

271/2000

Jón Andri Júlíusson (Hilmar Ingimundarson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Refsivist. Fangelsi. Agaviðurlög. Miskabætur. Vanreifun. Frávísun máls frá héraðsdómi. Gjafsókn. J, refsifangi í fangelsinu að Litla-Hrauni, var látinn sæta agaviðurlögum eftir að 21 g af hassi fannst við leit í klefa hans. Lögreglunni á Selfossi var gert viðvart eftir að fíkniefnin fundust og var í framhaldinu höfðað opinbert mál á hendur J. J var sýknaður af kröfum ákæruvaldsins í málinu og var dómi héraðsdóms ekki áfrýjað. Stefndi J þá íslenska ríkinu og krafðist miskabóta. Byggði hann á því að hann hefði ranglega verið látinn sæta viðurlögum fyrir ætlað agabrot sem hann hefði síðan verið sýknaður af með dómi í opinberu máli. Þar sem ákvörðun um agaviðurlög hafði hvorki verið tekin í tengslum við rannsókn eða meðferð opinbers máls né á grundvelli slíkrar rannsóknar, og stoð fyrir henni var ekki sótt til laga nr. 19/1991, var ekki talið að XXI. kafli þeirra gæti tekið til kröfu um bætur vegna þeirra. Var málsókn J, sem eingöngu var studd við ákvæði XXI. kafla laga nr. 19/1991, því ekki talin reist á viðhlítandi lagagrunni. Af þeim sökum og þar sem reifun J á sakarefni var í ýmsum atriðum áfátt var málinu sjálfkrafa vísað frá héraðsdómi.