Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á lögum nr. 34/1995, um vörugjald af olíu. nr. 120/1995

Landsréttur birt 18. apríl 2018

269/2018

K (Valborg Þ. Snævarr lögmaður) gegn M (Þórdís Bjarnadóttir lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var kröfu M um að dóttir hans og K yrði tekin úr umráðum K og fengin M með beinni aðfarargerð á grundvelli laga nr. 160/1995 um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o.fl. Aðilar eru pólskir ríkisborgarar og voru búsettir í Póllandi þegar dóttir þeirra fæddist árið 2010. Ráðið var af gögnum málsins að M hefði notið umgengni við barnið þar í landi en að K hefði þó tálmað umgengni frá lokum apríl 2016 og fram í september sama ár. Umgengni var komið á að nýju í september 2016 með úrskurði pólsks dómstóls, en undir eftirliti. Í lok janúar 2017 fór K með dótturina frá Póllandi til Íslands án vitundar M og hafa þær dvalið hér á landi frá þeim tíma. M tilkynnti hvarf dótturinnar til lögreglu í Póllandi í mars 2017 og í kjölfar þess var upplýst að mæðgurnar dveldu hérlendis. Pólskir dómstólar úrskurðuðu síðan að M skyldi njóta reglulegrar umgengni við dóttur sína. Þá gekk úrskurður þar í landi um takmörkun á forsjá K með skipan réttargæslumanns. Aðilar fara sameiginlega með forsjá forsjá barnsins og samkvæmt ákvæðum pólskra laga ber þeim að taka sameiginlega meiri háttar ákvarðanir sem varða barnið. Talið var að K hefði haldið stúlkunni frá M með ólögmætum hætti í skilningi 11. gr. laga nr. 160/1995. Þá hefði ekki verið sýnt fram á að skilyrði 2., 3., eða 4. töluliðar 12. gr. laganna, fyrir því að synja mætti um afhendingu barns, væru til staðar.