Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 10. gr. laga nr. 117/1993 — Lög um almannatryggingar

Hæstiréttur birt 26. febrúar 2009

395/2008

Tryggingastofnun ríkisins (Erla Svanhvít Árnadóttir hrl) gegn Leifi Björnssyni (Gestur Jónsson hrl)

L hóf töku lífeyris hjá T við 67 ára aldur árið 2002. T taldi að L hafi fengið ofgreitt vegna áranna 2003 og 2004. L fékk einnig greiddan lífeyri 2005 og 2006 en T taldi að L hefði ekki haft rétt til þess. Komu ofgreiðslurnar í ljós við endurreikning bóta. Var L tilkynnt með bréfum T að krafist væri endurgreiðslu ofgreidds lífeyris. Höfðaði L mál gegn T og krafðist þess að ákvörðun T um að krefja hann um endurgreiðslu yrði felld úr gildi. Talið var að T hafi skýrt tölulegar forsendur endurkröfu sinnar með fullnægjandi hætti við rekstur málsins fyrir héraðsdómi. Þá hafi T gætt andmælaréttar L með fullnægjandi hætti við töku ákvarðana um endurkröfuna og ekki væri hald í málsástæðum um að málsmeðferðarreglna hafi ekki verið gætt að öðru leyti. Var kröfum L því hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2008

E-7115/2007

Leifur Björnsson (Tryggvi Þórhallsson hdl) gegn Tryggingastofnun ríkisins (Þóra Björg Jónsdóttir hdl)

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, um tiltekna skuld stefnanda vegna ofgreidds ellilífeyris, var felld úr gildi. Öðrum kröfum stefnanda varðandi skuldastöðu var vísað frá dómi án kröfu.