Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á ýmsum lögum vegna samstarfs og eftirlits á vinnumarkaði. nr. 105/2024
Fallist var á kröfu um viðurkenningu á skaðabótaábyrgð vinnuveitanda og rétt starfsmanns til greiðslu bóta úr frjálsri ábyrgðartryggingu sama vinnuveitandans hjá tryggingarfélagi vegna líkamstjóns sem starfsmaðurinn varð fyrir í vinnuslysi.
B krafðist viðurkenningar á rétti til skaðabóta úr ábyrgðartryggingu A hf. hjá V hf. vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir við störf sín fyrir A hf. á starfsstöð félagsins. Slysið atvikaðist svo að B féll úr 1,55 metra hæð af flatvagni þegar hann var að hífa forsteyptar steypueiningar með bílkrana. Hæstiréttur vísaði til þess að meðal þeirra gagna sem dómarar líti til við frjálst sönnunarmat samkvæmt 1. mgr. 44. gr. laga nr. 91/1991 væru skýrslur Vinnueftirlitsins þótt álit eða ályktanir þess væru ekki bindandi fyrir dómara um niðurstöðu máls. Á hinn bóginn var ekki fallist á með stefnda að sök yrði reist á þeim almennu skírskotunum til vinnuverndarreglna sem fram kæmu í skýrslu Vinnueftirlitsins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ekki væru að finna laga- eða reglugerðarákvæði sem hefðu að geyma sérstök fyrirmæli um aðgerðir vinnuveitanda sem skylt hefði verið að grípa til vegna vinnu í þeirri hæð sem B var í er hann féll af flatvagninum. Var ekki sýnt fram á að orsök slyss B væri að rekja til vanbúnaðar á vinnustað eða ófullnægjandi verklags sem A hf. bæri skaðabótaábyrgð á heldur til óhappatilviks og aðgæsluleysis B við störf sín greint sinn. Voru A hf. og V hf. því sýknir af kröfu B.
Fallist var á viðurkenningarkröfu stefnanda um rétt til bóta úr vátryggingu vegna vinnuslyss.