Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 10. gr. laga nr. 105/2006 — Lög um umhverfismat áætlana
Í málinu leitaði L dóms um lögmæti svonefndrar kerfisáætlunar L hf., en í samræmi við ákvæði raforkulaga nr. 65/2003 var í meginatriðum að finna í henni spá um raforkuþörf og áætlun um uppbyggingu flutningskerfis fyrir rafmagn samkvæmt III. kafla laganna á árabilinu 2014 til 2023. Fyrir Hæstarétt var lögð ný kerfisáætlun L hf. fyrir árin 2015 til 2024, sem stjórn hans samþykkti í nóvember 2015 og Orkustofnun í apríl 2016, en hún kom í stað þeirrar áætlunar sem dómkrafa L tók til. Í dómi Hæstaréttar kom fram að án tillits til þess hvort L hefði nokkru sinni haft lögvarða hagsmuni af því að fá áætlun af þessum toga fellda úr gildi, væri ljóst að þeir hagsmunir hefðu liðið undir lok með samþykkt nýrrar áætlunar. Með því að atvik þessi urðu eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms var málinu vísað án kröfu frá Hæstarétti.
Hafnað kröfu um að fella kerfisáætlun úr gildi.