Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 1. gr. laga nr. 10/1993 — Lög um verðbréfasjóði

Hæstiréttur birt 6. nóvember 2003

184/2003

Kaupgarður hf (Hróbjartur Jónatansson hrl) gegn MP Verðbréfum hf (Sigurmar Kristján Albertsson hrl, Halldór Helgi Backman hdl)

Í málinu deildu aðilar um gildi áskriftarloforðs K hf. við almennt hlutafjárútboð, sem MP hf. annaðist fyrir MPB hf., til aukningar á hlutafé félagsins. Starfsemi félagsins fólst í að festa fé í lyfja- líftækni- og erfðafyrirtækjum. Í útboðslýsingu kom meðal annars fram að stærsta eign MPB hf. væri eignarhlutur í bandaríska félaginu BS Inc., en það félag ætti nokkurn fjölda einkaleyfa. Útboðsgengi var ákveðið 1,5 og kom fram í útboðslýsingu að vitað væri um viðskipti með bréf félagsins á verulega hærra gengi. Byggði K hf. einkum á því í málinu að síðastnefnd fullyrðing stæðist ekki og að MP hf. hafi þvert á móti verið kunnugt um viðskipti með bréfin á lægra verði á útboðstímanum. Einnig hafi verið ofmælt um einkaleyfaeign BS Inc. Talið var að ekkert hefði komið fram í málinu sem styddi fullyrðingar í útboðslýsingu um sölu hlutabréfa á verulega hærra gengi en 1,5 en K hf. hefði hins vegar ekki fært sönnur á að hlutabréf í félaginu hefðu verið seld undir útboðsgengi á útboðstímanum. Var talið að röng lýsing á einkaleyfaeign BS Inc. í útboðslýsingu yrði að skoðast í því ljósi að K. hf. hefði ekki verið að kaupa hlut í því félagi. Meta yrði útboðslýsinguna heildstætt, enda hefði þar verið skýrlega varað við þeirri áhættu sem fælist í fjárfestingu af þessu tagi og sérstaklega tekið fram að tapsáhætta væri mikil. Í tilboði K hf. hefði komið fram að tilboðsgjafi hefði kynnt sér rækilega öll útboðsgögn og að hann gerði sér sérstaka grein fyrir þeim áhættuþáttum sem fylgdu fjárfestingunni. Var kröfu K hf. um sýknu því hafnað.