Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Trúfélag
Eden Mining ehf (
Gísli Guðni Hall lögmaður)
gegn
Björgvini Ibsen Helgasyni, Elisabeth Saguar Sierra, Guðna Geir Kristjánssyni, Guðrúnu Ólafsdóttur, Guðrúnu Sigríði Kristinsdóttur, Halldóri Ólafssyni, Jóni Árna Jónssyni, Karli Jóhanni Guðnasyni, Kirsten Brödsgaard Larsen, Kristínu Guðrúnu Jónsdóttur, Lindu Dís Guðbergsdóttur, Magnúsi Kristjánssyni, Óðni Pétri Vigfússyni, Ólafi Sigurðssyni, Ómari Torfasyni, Pétri Ottóssyni, Sigrúnu Ruth Lopez Jack, Sigurgeiri Bjarnasyni, Smára Hólm Kristóferssyni, Sólveigu Hjördísi Jónsdóttur og Styrmi Geir Ólafssyni (
Kristinn Hallgrímsson lögmaður)
Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms um frávísun málsins. Í málinu deildu aðilar einkum um hvort varnaraðilar, sem allir nema tveir voru meðlimir í Kirkju sjöunda dags aðventista á Íslandi, ættu lögvarða hagsmuni af því að fá dóm um ógildingu samnings kirkjunnar við E ehf. um einkarétt félagsins til nýtingar jarðefnanáma í landi kirkjunnar. Kröfu sína um ógildingu hins umdeilda samnings byggðu varnaraðilar meðal annars á 17. gr. laga nr. 110/2021 um félög til almannaheilla. Hæstiréttur vísaði til þess að varnaraðilar hefðu í málatilbúnaði sínum ekki með viðhlítandi hætti gert grein fyrir hvernig heimild þeirra til að krefjast með málshöfðun ógildingar á ákvörðun félags á grundvelli 17. gr. laga nr. 110/2021 gæti skapað þeim stöðu aðila í dómsmáli þar sem gerð væri krafa á hendur viðsemjanda kirkjunnar um ógildingu á samningi sem hann hefði gert við hana. Þá hefðu þeir ekki reifað með viðhlítandi hætti á hvaða öðrum grundvelli þeir gætu haft lögvarða hagsmuni af kröfu sinni. Var málatilbúnaður varnaraðila um hvaða lögvarða hagsmuni þeir hefðu af kröfu um ógildingu samnings kirkjunnar og E ehf. og um aðild þeirra að máli um það sakarefni svo vanreifaður og í andstöðu við e-lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 að málið þótti ekki tækt til efnislegrar meðferðar. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og málinu vísað frá héraðsdómi.
Deilt um rétt trúfélags til dráttarvaxta vegna tafa á greiðslu sóknargjalda og um rétt félagsins til viðurkenningar á rétti til skaðabóta vegna meintrar ólögmætrar meðferðar sýslumanns á málefnum félagsins