Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Reiðhjól

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. apríl 2023

E-3018/2022

A (Stefán Geir Þórisson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)

Stefnandi varð fyrir líkamstjóni eftir að hann féll af reiðhjóli þegar hann mætti bifreið sem var ábyrgðartryggð hjá stefnda. Talið var sannað að notkun bifreiðarinnar hefði átt þátt í því að hann féll af hjólinu og jafnframt að hann hefði rekist utan í bifreiðina eftir fallið, sem og að orsakasamband hefði verið milli notkunar bifreiðarinnar og þess tjóns sem hann varð fyrir. Því var viðurkennd bótaskylda stefnda úr ábyrgðartryggingunni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. febrúar 2022

E-3024/2021

A (Ívar Þór Jóhannsson lögmaður) gegn Vegagerðinni (Anna Kristín Kristjánsdóttir lögmaður)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um viðurkenningu bótaskyldu vegna reiðhjólaslyss er framdekk reiðhjóls festist í ristarhliði á þjóðvegi. Ósannað þótti að stefndi sem veghaldari bæri ábyrgð á slysinu, m.a. þar sem ósannað þótti að stefnandi hefði auðsýnt eðlilega varkárni í skilningi vegalaga.