Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Reiðhjól
Stefnandi varð fyrir líkamstjóni eftir að hann féll af reiðhjóli þegar hann mætti bifreið sem var ábyrgðartryggð hjá stefnda. Talið var sannað að notkun bifreiðarinnar hefði átt þátt í því að hann féll af hjólinu og jafnframt að hann hefði rekist utan í bifreiðina eftir fallið, sem og að orsakasamband hefði verið milli notkunar bifreiðarinnar og þess tjóns sem hann varð fyrir. Því var viðurkennd bótaskylda stefnda úr ábyrgðartryggingunni.
Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um viðurkenningu bótaskyldu vegna reiðhjólaslyss er framdekk reiðhjóls festist í ristarhliði á þjóðvegi. Ósannað þótti að stefndi sem veghaldari bæri ábyrgð á slysinu, m.a. þar sem ósannað þótti að stefnandi hefði auðsýnt eðlilega varkárni í skilningi vegalaga.