Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Ríkiseignir
Stefndu Lindarhvoll ehf. og íslenska ríkið voru í málinu sýknaðir af dómkröfum stefnanda Frigus II ehf. Varðandi aðal- og varakröfu stefnanda, þá komst dómurinn að þeirri niðurstöðu, m.t.t. þess hvernig kröfugerð í málinu væri sett fram og rökstudd af hálfu stefnanda, að sýkna bæri stefndu af þeim dómkröfum stefnanda á grundvelli aðildarskorts, þar sem þær mögulegu kröfur hafi tilheyrt Kviku-banka hf., fram til þess að þær voru ótvírætt framseldar til stefnanda. Hvað varðar þrautavarakröfu stefnanda, sem tók mið af gildu framsali mögulegra kröfuréttinda frá Kviku-banka hf. til stefnanda, þá komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að einnig yrði að sýkna stefndu af þeirri dómkröfu stefnanda í málinu, þar sem að ósannað væri að Kviku-banka hf. hefði verið mismunað í umræddu söluferli af hálfu stefndu, auk þess sem ósannað væri að brot hafi átt sér stað í söluferlinu af hálfu stefndu sem hafi orðið þeim aðila til tjóns.