Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Lánasamningur
Maður dæmdur til að greiða eftirstöðvar láns.
Ágreiningur var um uppgjör málsaðila þar sem stefnandi höfðaði mál til uppgjörs á tveimur óuppgerðum fjölmyntarlánum með ólögmætri gengistryggingu. Gagnstefnandi féllst ekki á umrædda kröfu stefnanda, annars vegar þar sem hann taldi útreikninga á umræddu láni ekki standast en hins vegar þar sem hann taldi sig auk þess eiga gagnkröfur á stefnanda að hærri fjárhæð vegna rangs uppgjörs á fjármögnunarleigusamningum sem höfðu sætt riftun. Var fallist á kröfur stefnanda á hendur stefnda og þar með að leiðréttingar stefnanda á umræddum lánasamningum hefðu verið lögum samkvæmt. Mögulegum gagnkröfum gagnstefnanda á stefnanda var hins vegar hafnað þar sem slíkar kröfur væru ótvírætt niður fallnar fyrir fyrningu.