Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

15 dómar fundust

Lykilorð: Hvort gjaldþrotaskipti fari fram

Héraðsdómur Reykjaness birt 4. mars 2013

X-8/2012

Arion banki hf (Sigurður Guðmundsson hdl) gegn Hafhúsi ehf (Árni Ármann Árnason hrl)

Fallist var á með varnaraðila að lán, sem krafa sóknaraðila byggðist á, væri með ólögmætri gengistryggingu. Í ljósi þess og annarra gagna málsins var lögð til grundvallar niðurstöðu málsins sú fullyrðing varnaraðila að krafa sóknaraðila væri nægilega tryggð með veði í eignum varnaraðila. Kröfu sóknaraðila um að bú varnarðila yrði tekið til gjaldþrotaskipta var því hafnað.

Héraðsdómur Reykjaness birt 19. október 2012

X-16/2012

Íslandsbanki hf (Jón Auðunn Jónsson hrl) gegn Ásafélaginu ehf (Davíð Guðmundsson hdl)

Varnaraðili mótmælti beiðni sóknaraðila um að bú varnaraðila yrði tekið til gjaldþrotaskipta, m.a. á þeim grundvelli að ekki hefði verið rétt staðið að endurútreikningi á láni hans sem var verðtryggt miðað við gengi erlendra gjaldmiðla. Ekki var fallist á mótmæli varnaraðila og var bú hans tekið til gjaldþrotaskipta.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. maí 2012

X-4/2012

Íslandsbanki hf (Ágúst Stefánsson hdl) gegn Íslandsglitni ehf (Páll Kristjánsson hdl)

Fallist var á dómkröfur sóknaraðila um að bú varnaraðila yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á með varnaraðila að um ólögmætt, gengistryggt lán hefði verið að ræða og þá var talið að birting greiðsluáskorunar hefði farið fram með lögformlegum hætti.

Héraðsdómur Reykjaness birt 21. maí 2010

X-10/2010

BYR hf (Stefán Bjarni Gunnlaugsson hrl) gegn Gunnari Erni Haraldssyni (sjálfur)

Ekki var fallist á með varnaraðila að almennur forsendubrestur vegna efnahagshrunsins hér á landi ætti að leiða til þess að víkja bæri skuldabréfi sóknaraðila til hliðar í heild eða að hluta á grundvelli 36. gr. samningalaga. Var bú varnaraðila tekið til gjaldþrotaskipta.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 15. janúar 2007

X-3/2007

A.B.H. Byggir ehf (Smári Hilmarsson hdl) gegn Björgmundi Erni Guðmundssyni (Björn Jóhannesson hrl)

Fallist á kröfu lánardrottins um töku bús skuldara til gjaldþrotaskipta þar sem talið var að skuldaranum hefði ekki tekist sönnun þess að krafa lánardrottins væri nægilega tryggð með veði eða öðrum sambærilegum réttindum í eignum skuldarans eða þriðja manns eða vegna ábyrgðar þriðja manns.