Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lykilorð: Hlutlæg bótaábyrgð

Flokkur:
Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júní 2026 kl. 16:38

E-3533/2025

A (Grímur Már Þórólfsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður)

Íslenska ríkið var talið bera bótaábyrgð á grundvelli hlutlægrar bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 vegna handtöku og blóðsýnatöku sem stefnandi gekkst undir. Ekki var fallist á að hann hefði sjálfur valdið eða stuðlað að aðgerðum lögreglu þannig að rök stæðu til þess að fella niður eða lækka bætur til hans.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. febrúar 2025

E-7531/2023

A (Snorri Steinn Vidal lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Sonja H. Berndsen lögmaður)

Stefnandi sætti tvívegis þvingunarráðstöfunum vegna umferðareftirlits. Stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda um miskabætur vegna annars atviksins þar sem stefnandi var talinn hafa valdið eða stuðlað að aðgerðunum sjálfur. Hins vegar var stefndi dæmdur til að greiða stefnanda miskabætur vegna hins atviksins á grundvelli hlutlægrar bótareglu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. febrúar 2025

E-7527/2023

A (Gunnar Gíslason lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Sonja H. Berndsen lögmaður)

Stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda um miskabætur vegna þvingunarráðstafana sem stefnandi sætti vegna umferðareftirlits þar sem stefnandi var talinn hafa valdið eða stuðla að aðgerðunum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. febrúar 2025

E-2180/2024

A (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)

Stefnandi höfðaði mál á hendur íslenska ríkinu á grundvelli 246. gr. laga nr. 88/2008 vegna miska sem hún hefði hlotið af því að sitja í fangaklefa í tæpa 14 tíma, sími hennar hefði verið haldlagður og efnisinnihald hans rannsakað sem og fjarskipti við símann í tvo sólarhringa. Talið var að miski stefnanda væri hæfilega metinn til 400.000 kr.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. október 2024

E-6723/2023

A (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)

Fallist á kröfu stefnanda um miskabætur vegna þvingunaraðgerða lögreglu, á grundvelli hlutlægrar bótareglu 246. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Kröfu um skaðabætur vegna sömu þvingunaraðgerða hafnað.