Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Eftirlitsheimsókn

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. október 2024

E-1651/2023

Teppanyaki Iceland ehf. og Borg 16 ehf (Hildur Ýr Viðarsdóttir lögmaður) gegn Matvæla- og veitingafélagi Íslands (Flóki Ásgeirsson lögmaður)

Stefnendur höfðuðu mál gegn stefnda, stéttarfélagi, og kröfðust viðurkenningar á bótaskyldu vegna háttsemi sem tengdist eftirlitsheimsókn stefnda á veitingstað í eigu annars stefnenda. Nánar tiltekið krafðist annar stefnandi viðurkenningar á bótaskyldu vegna háttsemi starfsmanna stefnda við eftirlitsheimsókn á veitingastað í eigu stefnandans. Báðir stefnendur kröfðust viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna fréttatilkynningar stefnda í kjölfar eftirlitsheimsóknarinnar og vegna háttsemi stefndu í eftirfarandi fjölmiðlaumfjöllun. Fallist var á fyrstnefndu viðurkenningarkröfuna þar sem fulltrúar stefnda hefðu ekki fylgt skráðum hátternisreglum við eftirlitsheimsóknina og m.a. haft uppi staðhæfingar um stöðu rekstar veitingastaðarins við starfsmenn hans sem engin stoð var fyrir. Á hinn bóginn var stefndi sýknaður af öðrum kröfum stefnenda, m.a. í ljósi rúms tjáningarfrelsis hans auk þess sem atvik máls voru ekki talin gefa til kynna að stefndi hefði verið í slæmri trú þegar hann viðhafði þau ummæli sem málatilbúnaður stefnenda sneri að.