Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Útboðsskilmálar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. maí 2024

E-3264/2023

Smith & Norland hf (Jóna Björk Helgadóttir lögmaður) gegn Reykjafelli ehf. (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) og Reykjavíkurborg (Theodór Kjartansson lögmaður)

Stefnandi krafðist ógildingar á úrskurði kærunefndar útboðsmála, sem felldi úr gildi útboð R og V um endurnýjun gönguljósa í Reykjavík og fól þeim að bjóða út að nýju.Málinu var vísað frá dómi af sjálfsdáðum, þar sem ekki hefði verið sýnt fram á lögvarða hagsmuni stefnanda af því að fá efnisdóm um kröfu sína, eftir að útboðið hafði farið fram að nýju.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. maí 2022

E-3561/2021

Urð og grjót ehf (Ingvar Ásmundsson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Kristín Sólnes lögmaður)

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um viðbótargreiðslu fyrir vinnu samkvæmt verksamningi við tiltekinn verkþátt. Féllst dómurinn ekki á sjónarmið stefnanda um að verkið teldist aukaverk auk þess sem talið var ljóst stefnandi hefði við framsetningu kröfunnar ekki farið að ákvæðum útboðsgagna og ÍST-30 staðalsins sem gilti um verkið. Þá leit dómurinn til þess að stefnandi hefði unnið verkið þrátt fyrir að fyrirmæli um að gera það ekki fyrr en leyfi lægi fyrir og öryggisatriði væru tryggð.