Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Yfirlýsing

Landsréttur birt 21. október 2022

441/2021

Kristinn Guðmundsson (Steinbergur Finnbogason lögmaður) gegn Georg Rúnari Ögmundssyni, Halldóru Ögmundsdóttur Michelsen, Rósu Hrönn Ögmundsdóttur og Söru Ögmundsdóttur (Björn Þorri Viktorsson lögmaður)

Í málinu var deilt um gildi kaupsamnings milli K og dánarbús L, móður G, H, R og S, en K var fyrrverandi sambúðarmaður L. Með kaupsamningnum seldi dánarbú L K, 50% eignarhluta búsins í fasteign á Spáni. Söluverðið var ákveðið 14.500.00 kr. en K hafði ekki greitt hið umsamda kaupverð. Í samningnum var einnig staðfest að K ætti 50% eignarhlut í eigninni þrátt fyrir að eignin væri aðeins skráð á L. Með kaupunum átti K því að verða einn eigandi eignarinnar. Fyrir héraðsdómi kröfðust G, H, R og S aðallega ógildingar á kaupsamningnum en til vara riftunar. Með hinum áfrýjaða dómi var fallist á að ógilda bæri yfirlýsingu í kaupsamningnum um að áfrýjandi hefði verið eigandi helmings eignarinnar vegna brostinna forsenda og G, H, R og S hefði verið heimilt að rifta sölunni á þeim hluta sem K hélt fram að hann hefði keypt árið 2013 vegna verulegra vanefnda. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um G, H, R og S hefði verið heimilt að rifta kaupum K á helmingshlut í fasteigninni samkvæmt framangreindum kaupsamningi. Í dómi Landsréttar var á hinn bóginn hafnað kröfu G, H, R og S um ógildingu yfirlýsingar kaupsamningsins um að K ætti helmingshlut í fasteigninni. Á grundvelli þeirrar niðurstöðu var K jafnframt sýknaður af kröfum G, H, R og S um að víkja úr fasteigninni og sýknaður af skaðabótakröfu þeirra vegna afnotamissis af fasteigninni.