Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Veitingastaðir

Hæstiréttur birt 20. febrúar 2003

542/2002

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) og Reykjavíkurborg (Gestur Jónsson hrl) gegn Veitingahúsinu Austurvelli ehf (Sigurður G. Guðjónsson hrl, Karl Georg Sigurbjörnsson hdl)
Málaflokkur: Önnur sakamál

Deilt var um gildi breytingar sem gerð var á ákvæði lögreglusamþykktar fyrir Reykjavík nr. 625/1987 sem meðal annars bannaði sýnendum nektardans að fara um meðal áhorfenda og girti fyrir hvers konar einkasýningar. Hélt V ehf. því fram að með framangreindri breytingu væri vegið að atvinnufrelsi hans, sem varið væri af 75. gr. stjórnarskrárinnar. Hann ræki löglega starfsemi, sbr. i-lið 9. gr. laga nr. 67/1985 um veitinga- og gististaði og lög nr. 36/1988 um lögreglusamþykktir geymdu engar reglur sem heimiluðu stjórnvöldum takmörkun þess réttar. Þótt nektardans væri leyfður lögum samkvæmt taldi Hæstiréttur engu að síður heimilt að setja þeirri atvinnustarfsemi almennar skorður í þágu velsæmis og allsherjarreglu. Í 3. gr. laga nr. 36/1988 fælust ótvíræðar heimildir til að setja um þetta reglur í lögreglusamþykkt og bæri lögreglu að hafa eftirlit með því, að þeim reglum væri fylgt og að ekki ætti sér stað refsiverð háttsemi á veitingastöðum. Einkasýningar á nektardansi færu fram í lokuðu rými innan veitingastaðanna og yrði slíku eftirliti þar ekki við komið. Fyrrnefnd breyting á lögreglusamþykktinni fæli ekki í sér bann við nektardansi en áskildi aðeins að nektardansara væri bannað að loka að sér með viðskiptamanni meðan á sýningu stæði og fara um meðal áhorfenda. Væri þetta almenn regla í samræmi við ákvæði laga nr. 36/1988 og gerði yfirvöldum kleift að fylgjast með sýningum á nektardansi og ganga úr skugga um, að allsherjarreglu og velsæmis væri gætt og að ekki færi fram refsiverð háttsemi í næturklúbbum. Leyfi V ehf. til að reka næturklúbb gæti þannig ekki falið í sér heimild honum til handa til þess að láta svokallaðan einkadans fara fram í lokuðu rými á veitingastaðnum eða leyfa för sýnenda meðal áhorfenda. Þessir þættir í rekstri V ehf. yrðu því ekki taldir atvinnustarfsemi, sem nyti verndar 75. gr. stjórnarskrárinnar. Voru Í og R því sýknaðir af kröfum V ehf.