Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Vátryggingaskilmálar
Stefnda gert að greiða stefnanda hluta vátryggingarfjárhæðar úr slysa- og sjúkdómatryggingu sem í gildi var þegar staðfest var að stefnandi væri haldinn sjúkdómi sem tryggingin tæki til. Sannað þótti að stefnandi hefði hlotið 25% varanlega læknisfræðilega örorku af völdum sjúkdómsins og ætti rétt til greiðslu þess hlutfalls vátryggingarfjárhæðarinnar í samræmi við skilmála tryggingarinnar. Hafnað var málsástæðum stefnanda um að leggja bæri til grundvallar annað og hærra örorkustig eða notast við aðra mælikvarða til að meta afleiðingar sjúkdómsins. Hafnað var kröfu stefnanda um greiðslu vaxta eins og um skaðabótakröfu væri að ræða en fallist á dráttarvaxtakröfu frá málshöfðunardegi.