Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Tæling
Þ var sakfelldur brot gegn 1. mgr. 194. gr. og 1. og 3. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að hafa margítrekað tælt A, sem var á aldrinum 14 til 17 ára, til að hafa við sig kynferðismök með ólögmætri nauðung með því að hafa nýtt sér yfirburði sína gagnvart honum vegna aldurs-, þroska- og reynslumunar, meðal annars með því að hafa látið A í té farsíma og greiðslukort til afnota og veitt honum tóbak, áfengi og kannabisefni, auk þess sem Þ braut með framangreindri háttsemi gegn 18., sbr. 1. mgr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998 og 2. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Jafnframt var Þ sakfelldur fyrir brot gegn 199. gr. a og 1. mgr. 210. gr. a laga nr. 19/1940 og 3. mgr. 99. gr. laga nr. 80/2002 fyrir að hafa ítrekað tekið ljósmyndir af A sem sýndu hann á kynferðislegan hátt og haft slíkar myndir í vörslu sinni. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að háttsemi Þ var sérlega gróf og ófyrirleitin og beindist gegn barni yfir nánast samfellt tveggja ára skeið auk þess sem brotin voru hegningarauki við eldri dóm þar sem Þ hafði verið dæmdur til fangelsisvistar í fimm ár og sex mánuði. Með vísan til framangreinds var refsing Þ ákveðin fangelsi í þrjú ár og sex mánuði en með því hafði honum verið gert að sæta fangelsisvist í samtals níu ár. Þá voru ákvæði héraðsdóms þar sem Þ var gert að sæta upptöku á farsíma og greiða A 3.000.000 króna í miskabætur staðfest.
Þ var sakfelldur brot gegn 3. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa ítrekað tælt A með fíkniefnum, lyfjum og gjöfum til að hafa við sig samræði og önnur kynferðismök þegar A var 15 til 17 ára gamall og fyrir brot gegn 2. mgr. 194. gr. sömu laga með því að hafa notfært sér að A gat ekki spornað við háttsemi hans sökum áhrifa lyfja og fíkniefna til að hafa samræði og önnur kynferðismök við A. Þá var Þ sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 210. gr. a almennra hegningarlaga með því að hafa haft í vörslu sinni ljósmyndir og hreyfimynd sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Loks var Þ sakfelldur fyrir brot gegn 232. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa sent A skilaboð gegnum samskiptaforrit, verið í símasamskiptum við A og tekið A upp í bifreið sína þrátt fyrir nálgunarbann sem kvað á um að Þ væri bannað að setja sig í samband við A. Við ákvörðun refsingar Þ var litið til þess að mál á hendur honum vegna fjölmargra brota á hendur A frá 15 ára aldri var til meðferðar fyrir héraðsdómi þegar Þ gerðist sekur um nauðgun gagnvart A. Var refsing Þ ákveðin fangelsi í fimm ár og sex mánuði. Þá voru ákvæði héraðsdóms þar sem Þ var gert að sæta upptöku á farsíma og greiða A 3.500.000 krónur í miskabætur staðfest.