Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Stjórn
X var ákærður fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum með því að hafa vantalið alls 20.487.295 krónur í fjármagnstekjur á skattframtölum sínum fyrir gjaldárin 2007, 2008 og 2009. Með dómi Hæstaréttar var hafnað kröfu X um að málinu yrði vísað frá héraðsdómi vegna stjórnsýslulegra annmarka á ákvörðun skattrannsóknarstjóra. Meðal annars var vísað til þess að ákvörðun ákæranda um ákæru væri hluti af valdheimildum hans sem honum væru fengnar að lögum. Reyndist mat hans rangt og í ljós kæmi að á skorti að rennt væri nægjanlegum stoðum undir sakargiftir bæri ákæruvaldið halla af því með því að ákærði yrði sýknaður af þeim. Þá var ekki fallist á að vísa bæri málinu frá héraðsdómi með vísan til 2. mgr. 186. gr. laga nr. 88/2008, 70. gr. stjórnarskrárinnar, 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða 4. gr. 7. samningsviðauka sama sáttmála. Var það virt X til stórfellds hirðuleysis í skilningi 1. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt að haga framtalsskilum sínum eins og hann gerði. Með vísan til 3. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var X fundinn sekur um brot gegn 1. mgr. sömu lagagreinar og var honum gert að sæta fangelsi í átta mánuði en refsingin skilorðsbundin til tveggja ára. Þá var X gert að greiða 35.850.000 krónur í sekt til ríkissjóðs.