Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Skottulækningar

Hæstiréttur birt 2. mars 2000

504/1999

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Ríkharði Mar Jósafatssyni (Brynjar Níelsson hrl)

R var ákærður fyrir brot á læknalögum nr. 53/1988 með því að hafa látið birta tilkynningu um opnum starfsstöðvar, þar sem hann auglýsti sig sem „Doctor of Oriental Medicine“ og að sérgrein hans væri austræn læknisfræði, án þess að hafa öðlast rétt til þess að stunda lækningar hér á landi og kalla sig lækni. Talið var að með birtingu auglýsinganna hefði R hvorki kallað sig lækni né auglýst að hann stundaði lækningar þannig að bryti gegn 1. gr. læknalaga. Þegar auglýsingin var lesin í heild sinni þótti ekki geta vafist fyrir lesanda að þjónusta R fælist í svokölluðum óhefðbundnum lækningum. Var ekki talið að hann hefði með auglýsingunni gefið hugmyndir um að hann væri læknir eða stundaði lækningar þannig að bryti gegn 6. gr. læknalaga. Þá var ekki á það fallist, miðað við verknaðarlýsingu ákæru, að háttsemi R hefði falið í sér brot á banni 22. gr. læknalaga við skottulækningum. Var R því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.