Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Skaðabótaábyrgð stjórnar
Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur flugvélaleigusala félagsins vegna greiðslna sem WOW air hf. greiddi þeim aðila í aðdraganda gjaldþrots. Ekki var fallist á að skilyrði 134.gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt. Á hinn bóginn var talið að sýnt hefði verið fram á að félagið hafi verið ógjaldfært þegar greiðslan var innt af hendi, grandsemi ALC um þá ógjaldfærni og að ótilhlýðilegt hefði verið að taka við greiðslunum. Var móttakanda greiðslunnar því gert að endurgreiða þrotabúi WOW air hf. greiðsluna með vöxtum og dráttarvöxtum. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. og stjórn félagsins til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi stjórnar eða forstjóra fælist saknæm háttsemi. Í fyrsta lagi segir í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 21/1991 að ef stjórn láti hjá líða að leita gjaldþrotaskipta á félagi þá beri þeir skaðabótaábyrgð gagnvart lánardrottnum félagsins. Ekki var fallist á að þrotabú slíks félags gæti þannig byggt kröfu um skaðabætur á nefndu lagaákvæði, enda hefði greiðslan til Eurocontrol ekki verið til hagsbóta fyrir stjórnarmennina persónulega. Þar sem erlendum tryggingarfélögum sem selt höfðu WOW air hf. stjórnendatryggingar, var stefnt til réttargæslu var litið svo á með vísan til 3. mgr. 19. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 að tjón teldist ekki bótaskylt nema það yrði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis. Þessu til viðbótar var það mat dómsins að við sakarmat bæri að veita stjórninni nokkurt svigrúm í tilraunum sínum til að bjarga rekstri félagsins. Tæki þannig mælikvarði við mat á því hvort háttsemi stjórnar væri saknæm, mið af slíku svigrúmi. Þá var til þess litið að síðustu fimm mánuðina í rekstri félagsins voru stjórn og stjórnendur í viðræðum við fjárfesta og voru þær viðræður metnar trúverðugar. Var ekki fallist á að sá tími sem stjórn hafði svigrúm til að snúa rekstri félagsins við teldist hafa runnið sitt skeið á enda áður en umrædd greiðsla var innt af hendi.
Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur Eurocontrol vegna greiðslu sem WOW air hf. greiddi í aðdraganda gjaldþrots. Ekki var fallist á að skilyrði 134.gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt. Þá var ekki fallist á að Eurocontrol hefði haft hag af greiðslunni í skilningi 141. gr. laganna nema að litlum hluta. Þeim hluta greiðslunnar var rift en Eurocontrol sýknað að öðru leyti. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. og stjórn félagsins til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi stjórnar eða forstjóra fælist saknæm háttsemi. Í fyrsta lagi segir í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 21/1991 að ef stjórn láti hjá líða að leita gjaldþrotaskipta á félagi þá beri þeir skaðabótaábyrgð gagnvart lánardrottnum félagsins. Ekki var fallist á að þrotabú slíks félags gæti þannig byggt kröfu um skaðabætur á nefndu lagaákvæði, enda hefði greiðslan til Eurocontrol ekki verið til hagsbóta fyrir stjórnarmennina persónulega. Þar sem erlendum tryggingarfélögum sem selt höfðu WOW air hf. stjórnendatryggingar, var stefnt til réttargæslu var litið svo á með vísan til 3. mgr. 19. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 að tjón teldist ekki bótaskylt nema það yrði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis. Þessu til viðbótar var það mat dómsins að við sakarmat bæri að veita stjórninni nokkurt svigrúm í tilraunum sínum til að bjarga rekstri félagsins. Tæki þannig mælikvarði við mat á því hvort háttsemi stjórnar væri saknæm, mið af slíku svigrúmi. Þá var til þess litið að síðustu fimm mánuðina í rekstri félagsins voru stjórn og stjórnendur í viðræðum við fjárfesta og voru þær viðræður metnar trúverðugar. Var ekki fallist á að sá tími sem stjórn hafði svigrúm til að snúa rekstri félagsins við teldist hafa runnið sitt skeið á enda áður en umrædd greiðsla var innt af hendi.