Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Skýrslutaka fyrir Hæstarétti

Hæstiréttur birt 21. febrúar 2002

11/2001

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn X (Jóhann Halldórsson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var saksóttur fyrir að hafa þrívegis orðið sekur um kynferðisbrot gagnvart drengnum A. Við skýrslugjöf hjá lögreglu hafði X viðurkennt tiltekna háttsemi gagnvart drengnum, sem hann tók aftur við meðferð málsins fyrir dómi og gaf á því skýringar. Við skýrslutöku hjá lögreglu skömmu síðar var einnig vísað til þessarar skýrslu, án þess að fram kæmu fyrirvarar af hálfu X. Ekki var fallist á frávísun málsins en krafist hafði verið frávísunar m.a. á grundvelli forms áfrýjunarstefnu, kröfugerðar ákæruvaldsins, ágripsgerðar og framlagðra matsgerða undir áfrýjun málsins. Aðfinnsluvert var talið að mat héraðsdóms á sönnunargildi eða trúverðugleika framburðar X fyrir dómi og á skýringum hans á fráhvarfi frá framburði hjá lögreglu, væri enn mjög óljóst og ómarkvisst en málinu hafði áður verið vísað heim í hérað sökum þessa. Var því talið nauðsynlegt að X kæmi fyrir Hæstarétt til skýrslugjafar. Varðandi framburð A taldi dómurinn að framburður hans væri stöðugur og trúverðugur og með hliðsjón af því og framburði hinna sérfróðu aðila sem komið höfðu að málinu, þótti ekkert fram komið sem gaf tilefni til að efast um trúverðugleika framburðar A. Þá var litið til þess að við skýrslutökur hjá lögreglu hafði þegar í upphafi komið fram sjálfstæð frásögn X um tvö tilvik sem kom mjög heim og saman við lýsingar A á því sem gerst hafði. Ekkert lá fyrir um að X hefði verið beittur þrýstingi við yfirheyrsluna og hafði verjandi hans verið viðstaddur hana. Þá þóttu skýringar X á fráhvarfi sínu frá umræddum framburði ótrúverðugar og fráleitar. Við sönnunarmat í málinu var því höfð hliðsjón af játningu X hjá lögreglu og síðari tilvísunar hans til þeirrar skýrslugjafar án athugasemda. Var X sakfelldur fyrir að hafa tvívegis orðið sekur um kynferðisbrot gagnvart A en varhugavert þótti að telja fram komna sönnun um eitt tilvik sem greindi í ákæru. Var X dæmdur til að sæta fangelsi í 12 mánuði, þar af 9 mánuði skilorðsbundna. Miskabótakröfu A var vísað frá Hæstarétti með vísan til 1. mgr. 173. gr. laga nr. 19/1991.