Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Samþykktir
Björgvin Ibsen Helgason, Elisabeth Saguar Sierra, Guðni Geir Kristjánsson, Guðrún Ólafsdóttir, Guðrún Sigríður Kristinsdóttir, Halldór Ólafsson, Jón Árni Jónsson, Karl Jóhann Guðnason, Kirsten Brödsgaard Larsen, Kristín Guðrún Jónsdóttir, Linda Dís Guðbergsdóttir, Magnús Kristjánsson, Óðinn Pétur Vigfússon, Ólafur Sigurðsson, Ómar Torfason, Pétur Ottósson, Sigrún Ruth Lopez Jack, Sigurgeir Bjarnason, Smári Hólm Kristófersson, Sólveig Hjördís Jónsdóttir og Styrmir Geir Ólafsson (
Kristinn Hallgrímsson lögmaður)
gegn
Kirkju sjöunda dags aðventista og Eden Mining ehf (
Gísli Guðni Hall lögmaður)
Málið varðaði kröfu B o.fl., félagsmanna í K, um ógildingu samnings K við E ehf. Í úrskurði Landsréttar var rakið að starfsemi K félli undir lög nr. 110/2021 um félög til almannaheilla, en í 17. gr. þeirra laga væri félagsmönnum tryggður tiltekinn réttur til málshöfðunar, þar á meðal um ákvarðanir sem rýrðu sérstaka hagsmuni sem félagsmaður ætti samkvæmt samþykktum félagsins eða sem raskaði jafnræði félagsmanna. Ljóst þótti að efni samningsins kynni að skipta miklu fyrir rekstur og starfsemi kirkjunnar og þar með réttindi og réttarstöðu almennra félagsmanna hennar, sem höfðu í samræmi við samþykktir kirkjunnar staðið að miklu leyti undir rekstri hennar. Óumdeilt var að almennir félagsmenn höfðu ekki verið upplýstir um að til stæði að gera umþrættan samning við E ehf. og hann undirritaður án kynningar eða umræðu innan félagsins. Með því kváðust B o.fl. hafa verið sviptir rétti sem almennir félagsmenn til að koma að ákvörðunartöku í félaginu um efni sem varðaði hagsmuni þeirra. Þá hefði jafnræði félagsmanna verið raskað. Með vísan til framangreinds teldust sóknaraðilar hafa lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins. Var úrskurður héraðsdóms um hið gagnstæða því felldur úr gildi og lagt fyrir hann að taka málið til efnislegrar meðferðar.