Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Söluverð

Hæstiréttur birt 4. maí 2005

473/2004

Sigurður Pétur Hauksson (Dögg Pálsdóttir hrl) gegn Greiðslumiðlun hf (Lúðvík Örn Steinarsson hrl)

G hf. krafðist þess að S greiddi sér eftirstöðva kaupverðs samkvæmt sex nánar tilgreindum kaupsamningum með eignarréttarfyrirvara. Hafði S undirritað alla kaupsamningana sem kaupandi og átti G hf., sem hafði fengið umrædda samninga framselda, því kröfu á hendur honum á grundvelli þeirra. Þá var bent á að S hefði með áritun sinni á kortumsókn sem handhafi svonefnds aukakorts og athugasemdalausri notkun þess undirgengist skilmála um kortið og ætti G hf. því einnig á grundvelli þeirra kröfu á hendur S um greiðslu eftirstöðva kaupverðs umræddra kaupsamninga. Ekki var fallist á að kröfur G hf. væru fyrndar. Þá var ekki talið skipta neinu fyrir úrlausn málsins að S hefði verið úrskurðaður gjaldþrota árið 1992, að kröfunum hefði að hálfu G hf. verið fyrst beint að eiginkonu S eða að G hf. hefði ekki neytt heimildar í samningunum til að rifta þeim. Var því fallist á kröfur G hf.