Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Refsing

Hæstiréttur birt 18. desember 2024

27/2024

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn Gareese Joshua Gray (Björgvin Jónsson lögmaður) (Ólafur Rúnar Ólafsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var ákærður fyrir nauðgun samkvæmt 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa sest klofvega ofan á brotaþola, haldið henni niðri og nuddað getnaðarlim sínum við andlit hennar þar til hann fékk sáðlát yfir það. Héraðsdómur taldi að heimfæra ætti brot X undir 209. gr. laga nr. 19/1940. Landsréttur taldi hins vegar brot X falla undir „önnur kynferðismök“ í 1. mgr. 194. gr. laga nr. 19/1940. Hæstiréttur tók fram að dómaframkvæmd hefði ekki verið fyllilega einhlít um heimfærslu háttsemi af þessu tagi. Rétturinn taldi að líta yrði til atvika í heild og aðstæðna hverju sinni. Horfa yrði til þess að X hefði verið klofvega yfir brotaþola og varnað henni undankomu samtímis því að fróa sér nærri andliti hennar þangað til hann hafði sáðlát yfir það. Háttsemin fæli í sér misnotkun á líkama brotaþola og væri til þess fallin að veita honum kynferðislega útrás. Var því talið að um hafi verið að ræða önnur kynferðismök í skilningi 1. mgr. 194. gr. laga nr. 19/1940. X var dæmdur í tveggja ára fangelsi og til þess að greiða brotaþola 2.000.000 króna í miskabætur.

Héraðsdómur Vesturlands birt 18. desember 2023

S-13/2023

Héraðssaksóknari (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) (Axel Kári Vignisson lögmaður bótakrefjanda)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Líkamsárás. Ekki fallist á neyðarvörn ákærða en atvik máls m.a. að brotaþoli var talinn upphafsmaður átaka við ákærða leiddu til þess að refsing ákærða var felld niður.