Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Nytjaleyfi

Hæstiréttur birt 26. október 2006

143/2006

NorðurBragð hf (Anton Björn Markússon hrl) gegn Norðri ehf (Ólafur Haraldsson hrl)
Lykilorð: Einkaleyfi. Nytjaleyfi. Hlutafé.

N ehf. krafðist þess að lagt yrði bann við nýtingu NB hf. á einkaleyfi þess. Atvik málsins eru þau að N ehf. tók þátt í stofnun félags um bragðefnavinnslu í Hornafirði 20. október 1999. Sama dag sótti N ehf. um einkaleyfi á sérstakri ensímtæknilegri aðferð sem unnt er að nota til bragðefnavinnslu. Hlutafjárframlag N ehf. í félaginu, NB hf., var greitt í formi þekkingar, eins og nánar var kveðið á um í 1. lið samnings aðila frá 22. október 1999. Í málinu var deilt um túlkun á 1. lið samningsins, þ.e. hvort hlutafjárframlag N ehf. hafi einungis falist í almennri þekkingu á notkun ensímtæknilegrar aðferðar eða hvort um hafi verið að ræða nytjaleyfi á einkaleyfi N ehf. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að samkvæmt lögum nr. 17/1991 um einkaleyfi þurfi nytjaleyfissamningar ekki að uppfylla formskilyrði til að teljast gildir. Ljóst sé að hið umdeilda ákvæði sé ekki skýrt, en þegar það sé lesið með 2. lið samningsins verði að fallast á þá málsástæðu NB hf. að í 1. lið samkomulagsins hafi falist ótímabundið og óafturtækt nytjaleyfi á einkaleyfi N ehf. Var NB hf. því sýknað af kröfu N ehf.