Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Niðurfelling refsingar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. desember 2023

S-4428/2023

Héraðssaksóknari (Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var sýknaður af ákæru fyrir tilraun til manndráps, en sakfelldur fyrir líkamsárás, sbr. 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Honum var ekki gerð refsing með vísan til 1., 2. og 4. tl. 1. mgr., sbr. 2. mgr. 74. gr. sömu laga.

Hæstiréttur birt 20. desember 2011

292/2011

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn X (Erlendur Þór Gunnarsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði krefst aðallega sýknu, en til vara að refsing hans verði milduð. Þá krefst hann þess aðallega að skaðabótakröfu brotaþola verði vísað frá héraðsdómi, til vara að hann verði sýknaður af henni, en að því frágengnu að tildæmdar bætur verði lækkaðar. A krefst þess aðallega að ákærða verði gert að greiða honum skaðabætur að fjárhæð 1.089.193 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 5. júlí 2009 til 5. febrúar 2010, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Til vara krefst hann staðfestingar hins áfrýjaða dóms. Í báðum tilvikum krefst hann málskostnaðar fyrir Hæstarétti.