Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Námaréttindi
Eigendur jarðanna SI, SII og SIII deildu um hvort námaréttindum hafi verið skipt með fjórum landskiptagerðum um jörðina S samkvæmt landskiptalögum nr. 46/1941 eða hvort réttindin væru í óskiptri sameign þeirra. Hafði landskiptagerð sú, sem fyrst var gerð, glatast og ekki vikið að skiptingu réttindanna í síðari gerðum. Samkvæmt því var ósannað að allir eigendur hafi samþykkt slík skipti. Var heldur ekki sýnt fram á að þau hafi verið svo hagkvæm að ekki væri á neinn hallað, sbr. 1. mgr. 3. gr. laganna. Þá var óumdeilt að arði af malartöku úr landi jarðanna þriggja hafði á undanförnum áratugum að mestu verið skipt þannig að eigendur SI fengu helming en eigendur SII og SIII hvor um sig einn fjórða. Var því fallist á kröfu eiganda jarðarinnar SI um að eigendum hinna jarðanna tveggja væri skylt að greiða honum helming endurgjalds fyrir malarefni úr óskiptum námaréttindum jarðanna.