Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Milliverðlagning
Krafist var að úrskurðir yfirskattanefndar og ríkisskattstjóra um endurákvörðun á opinberum gjöldum stefnanda gjaldárið 2016 yrðu felldir úr gildi þar sem þeir væru haldnir efnis- og formágöllum. Þess var krafist að stefnda yrði gert að endurgreiða stefnanda fjárhæð sem honum hafi verið gert að greiða í kjölfar endurákvörðunarinnar. Deilt var um hvort söluverð stefnanda á framleiðsluvöru sinni til írsks móðurfélags síns hafi verið ákvarðað í samræmi við 3. mgr. 57.gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003, þ.e. hvort verðlagningin teldist sambærileg því sem almennt gerist í viðskiptum ótengdra aðila og þar með í samræmi við armslengdarsjónarmið. Var fallist á að stefnandi mætti beita kostnaðarálagningaraðferðinni skv. leiðbeiningarreglum OECD við ákvörðun milliverðs milli hinna tengdu aðila en skv niðurstöðu dómsins hafði stefnandi hins vegar beitt þeirri aðferð á rangan máta sem færi gegn leiðbeiningarreglum OECD og þar með gegn 3.mgr. 57.gr. laga um tekjuskatt. Var fallist á að heimilt væri að leiðrétta kostnaðargrunninn með því að bæta við hann launakostnaði og afskriftum fastafjármuna á þann máta sem skattyfirvöld hefðu gert. Einnig var fallist á niðurstöðu skattyfirvalda að hæfileg álagning ofan á þannig leiðréttan kostnaðargrunn væri álag sem næmi 50% brúttóframlegð af kostnaðarverði seldra vara. Ekki var fallist á að úrskurður yfirskattanefndar væri haldinn form- eða efniságalla en óþarft var talið að krefjast sérstaklega að úrskurður ríkisskattstjóra yrði felldur úr gildi þar sem hann hafi efnislega orðið hluti úrskurðar yfirskattanefndar. Stefndi var einnig sýknaður af varakröfu stefnanda þar sem ekki var fallist á að óvissa hafi verið um heimild til skattlagningarinnar og ekki talið tilefni til að falla frá beitingu 25% álags sem lagt hafði verið á vantalinn skattstofn stefnanda á grundvelli 1.mgr. 108. gr. laga um tekjuskatt.