Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Innbrot
Stefndi var talinn bótaskyldur vegna innbrots í íbúð stefnanda vegna þeirra muna sem sannað þótti að hefðu farið forgörðum við innbrotið, en stefnandi þótti ekki hafa fært sönnur fyrir því að umfang tjóns hefði orðið meira en vegna þeirra muna sem reikningar voru lagðir fram um. Lánaðist stefnanda ekki sönnunarfærsla um frekara tjón og bar hallann af því með hliðsjón af þeim verulegu vafaatriðum sem uppi voru um umfang tjónsins. Stefnda lánaðist hins vegar ekki sönnun um að stefnandi hefði veitt rangar og ófullnægjandi upplýsingar við uppgjör bóta og var bótaskylda því ekki felld niður.