Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Greinargerð

Landsréttur birt 14. apríl 2021

166/2021

A (Kristinn Hallgrímsson lögmaður) gegn B (enginn)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli A á hendur B og C til réttargæslu var vísað frá dómi án kröfu. Í úrskurði Landsréttar kom fram að með þeim dómkröfum sem hafðar voru uppi í stefnu í héraði leitaðist A í reynd við að hnekkja þinglýstri eignarheimild B að 50% eignarhluta í tilgreindri fasteign. Yrði því að gera nokkuð ríkar kröfur til sönnunar þótt um útivistarmál væri að ræða. Ekki hefðu verið færð fram viðhlítandi sönnunargögn til stuðnings þeim málsástæðum sem byggt var á í stefnu. Var því fallist á með héraðsdómi að málið væri svo vanreifað af hálfu A að varða ætti frávísun þess án kröfu, sbr. g-lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Hinn kærði úrskurður var því staðfestur.